Hæ,
það er ekki sjens að setja myndir hér inn, svo þær eru inni á facebook hér:
https://www.facebook.com/groups/375454012588772/
Svo er heimasíða mótsins hér, þar sem öll úrslitin koma inn:
http://www.budva2013.org/
U8 og U10 byrja að keppa kl. 4 en hinir kl. hálf 4, sem er þá kl. 2 og hálf 2 að íslenskum tíma.
Bless
Óskar
þriðjudagur, 1. október 2013
Önnur umferðin!
Hæ allir
Í gær var umferð númer tvö. Ég keppti við strák frá Georgíu sem var mjög góður. Skákin var í tvo og hálfan klukkutíma og þá gafst hann upp því að ég var að ná drottningu uppi í borði og þá var ég með unnið. Ég var með svart og tefldi eitt afbrigði af Sikileyjarvörn. Ég var kominn upp á borð 9 þá. Núna er ég kominn í 1-14 sæti, og raðast í fjórða sæti af þessum fjórtán, svo að ég er örugglega kominn upp á fjórða borð núna held ég. Í dag er ég líka að tefla við annan strák frá Georgíu, sem er land í austur Evrópu.
Vignir var búinn aðeins á undan mér og náði jafntefli, svo að hann er taplaus, sem er gott. Hilmir vann líka sína skák og svo náði Mikki jafntefli líka. Vonandi gengur þriðja umferð vel hjá íslenska liðinu í dag. Ég er búinn að stúdera með Hjörvari og hinir eru allir að læra núna líka. Ég á eftir að slá skákinni minni frá því í gær inn í tölvuna, en ég geri það eftir hverja umferð til að skoða þær og læra af þeim.
Í gær var geðveik rigning, eldingar líka og allt svaka blautt. Sem betur fer kom ég með regnstakkinn minn og mamma keypti líka risastóra regnhlíf. Núna er aftur komin sól, mamma segir að það sé af því að hún keypti regnhlíf, annars væri örugglega ennþá rigning.
Boris fann sko ekki lykilinn okkar aftur en við fengum einhvern ónýtan aukalykil sem gekk ekki almennilega að hurðinni. Við læstumst inni í herberginu og þurftum að klifra út af svölunum en svo kom viðgerðarmaður og skipti um lás. Við erum komin með nokkur moskítóbit svo við pössum okkur vel í kvöld. Við spilum gúrku úti á svölum á kvöldin, en Vignir vann í fyrradag og mamma í gær. Ég var í öðru sæti.
Það er erfitt að setja myndir inn hér, en svo er líka inni á facebook sem heitir EM ungmenna Budva - Monte Negro 2013 eða eitthvað svoleiðis
Þar er mynd af mér þegar önnur umferðin er að byrja og fleira dót frá hinum í hópnum. Jæja, ég ætla að skella mér út í sundlaug sem ég hef ekki haft tíma til að prófa ennþá. Það er kominn tími til.
Bless, bless, allir

sunnudagur, 29. september 2013
Fyrsta umferðin!!!
Hæ allir,
ég þurfti að vakna klukkan fjögur um nótt af því að ég þurfti að fara í flugvél. Pabbi keyrði okkur mömmu út á völl þar sem við hittum allt liðið. Ég flaug með Wow air til London. Við þurftum að bíða heillengi á flugvellinum í London. Síðan flaug ég með Easy Jet til Dubrovnik sem er í Króatíu. Þá var komið kvöld. Síðan þurftum við að keyra í rútu í tvo og hálfan tíma til Budva í Svartfjallalandi þar sem mótið er haldið. Á leiðinni fórum við með ferju, klósettin þar voru óóóógeðsleg. Við komum á hótelið okkar klukkan hálf tólf eða eitthvað og keyptum okkur brauð og salami í kvöldmat.
Hótelið er rosa fínt, með sundlaug og öllu, en núna er Boris í afgreiðslunni búinn að týna lyklinum okkar, svo við höfum ekki lykil að herberginu núna. Hann var ekki að skilja að það væri bara nóg að opna herbergið, hélt ekki að við þyrftum sjálf lykil til að læsa því seinna. Aumingja Boris þegar mamma fer aftur að tala við hann á eftir.
Svo fór ég að tefla kl. 4 í dag. Það voru sko frekar margir þarna, sérstaklega frá Tyrklandi, Rússlandi og Georgíu, heilu hóparnir af skákkrökkum. Við sem erum í flokkum undir 8 ára og 10 ára stráka og stelpna, við erum í einhverjum barnaskóla sem er frekar sjúskaður. Allir hinir keppa í íþróttahúsi bæjarins sem er sko alls ekki flott heldur. Ég drakk fullt af vatni og þurfti að fara að pissa eftir svona klukkutíma. Klósettin á ferjunni voru ógeðsleg, en þessi voru fimm sinnum ógeðslegri. Það var sko bara gat á gólfinu sem maður átti að kúka og pissa í, sem var ógeðslegt. Sem betur fer þurfti ég bara að pissa. Enginn klósettpappír og engin sápa til að þvo sér og gólfið var rennblautt. Ég hef aldrei í lífinu séð svona ógeðslegt klósett!!
Ég var að tefla við strák frá Austurríki sem heitir Marc. Ég var með hvítt og fékk miklu betri stöðu en síðan klúðraði ég og hann var með unnið. Og síðan klúðraði hann! Og ég bara mátaði hann og vann!!! Hann var sko bara góður en ég kom samt betur út úr opnuninni. Vignir vann líka og Jokko gerði jafntefli, svo ég var mjög ánægður með það. Það voru allir í efri flokkunum að tefla geðveikt langt upp fyrir sig.
Jæja, ég ætla að fara að borða núna. Það er rosalega erfitt að komast á netið, svo að ég get kannski ekki alltaf sett inn á bloggið og ég get heldur ekki sett inn myndir ennþá. Prófa bara aftur seinna.
Kv.Óskar

föstudagur, 23. ágúst 2013
Velkomin á bloggið mitt
Nú er ég kominn með blogg af því að ég er að fara til Svartfjallalands á Evrópumótið í skák. Ég var valinn í landsliðið í skák í júní og er búinn að æfa mikið síðan þá. Það hafa verið æfingar með liðinu og þjálfurunum Hjörvari Steini og Helga Ólafssyni, en þeir eru sko skáksnillingar. Ég keppi í opnum flokki undir 8 ára og fer út 28 september og verð til 10 október.
Ég blogga fyrir vini mína og kennarann minn líka, en bloggið er heimaverkefnið mitt fyrir skólann á meðan ég verð úti.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)