sunnudagur, 29. september 2013

Fyrsta umferðin!!!

Hæ allir,

ég þurfti að vakna klukkan fjögur um nótt af því að ég þurfti að fara í flugvél.  Pabbi keyrði okkur mömmu út á völl þar sem við hittum allt liðið. Ég flaug með Wow air til London. Við þurftum að bíða heillengi á flugvellinum í London. Síðan flaug ég með Easy Jet til Dubrovnik sem er í Króatíu. Þá var komið kvöld. Síðan þurftum við að keyra í rútu í tvo og hálfan tíma til Budva í Svartfjallalandi þar sem mótið er haldið. Á leiðinni fórum við með ferju, klósettin þar voru óóóógeðsleg. Við komum á hótelið okkar klukkan hálf tólf eða eitthvað og keyptum okkur brauð og salami í kvöldmat.

Hótelið er rosa fínt, með sundlaug og öllu, en núna er Boris í afgreiðslunni búinn að týna lyklinum okkar, svo við höfum ekki lykil að herberginu núna. Hann var ekki að skilja að það væri bara nóg að opna herbergið, hélt ekki að við þyrftum sjálf lykil til að læsa því seinna. Aumingja Boris þegar mamma fer aftur að tala við hann á eftir.

Svo fór ég að tefla kl. 4 í dag. Það voru sko frekar margir þarna, sérstaklega frá Tyrklandi, Rússlandi og Georgíu, heilu hóparnir af skákkrökkum. Við sem erum í flokkum undir 8 ára og 10 ára stráka og stelpna, við erum í einhverjum barnaskóla sem er frekar sjúskaður. Allir hinir keppa í íþróttahúsi bæjarins sem er sko alls ekki flott heldur.  Ég drakk fullt af vatni og þurfti að fara að pissa eftir svona klukkutíma. Klósettin á ferjunni voru ógeðsleg, en þessi voru fimm sinnum ógeðslegri. Það var sko bara gat á gólfinu sem maður átti að kúka og pissa í, sem var ógeðslegt. Sem betur fer þurfti ég bara að pissa. Enginn klósettpappír og engin sápa til að þvo sér og gólfið var rennblautt. Ég hef aldrei í lífinu séð svona ógeðslegt klósett!!

Ég var að tefla við strák frá Austurríki sem heitir Marc. Ég var með hvítt og fékk miklu betri stöðu en síðan klúðraði ég og hann var með unnið. Og síðan klúðraði hann! Og ég bara mátaði hann og vann!!! Hann  var sko bara góður en ég kom samt betur út úr opnuninni. Vignir vann líka og Jokko gerði jafntefli, svo ég var mjög ánægður með það. Það voru allir í efri flokkunum að tefla geðveikt langt upp fyrir sig.

Jæja, ég ætla að fara að borða núna. Það er rosalega erfitt að komast á netið, svo að ég get kannski ekki alltaf sett inn á bloggið og ég get heldur ekki sett inn myndir ennþá. Prófa bara aftur seinna.

Kv.Óskar

6 ummæli:

  1. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgast með Óskar minn, Ferðalagið hljómar allt virkilega spennandi og öðruvísi, allt nema þetta með klósettin, oj :-) Til hamingju með fyrsta sigurinn :-) fylgjumst með hér á Íslandi og höldum með þér en umfram allt, njóttu tímans, þetta er algjör ævintýri. Bestu kveðjur Kristín Steinunn og Birgir Logi.

    SvaraEyða
    Svör
    1. Takk fyrir þetta, Kristín og Birgir Logi. Ég reyni að vera duglegur að blogga en það er smá erfitt því að það er svo erfitt að komast á netið. Ég reyni samt að vera duglegur!!

      Eyða
  2. Takk fyrir þessa skemmtilegu frásögn Óskar, frábært að fá svona fréttir frá ykkur. Ég læt Halla og Stebba lesa á eftir. Bestu kveðjur frá pabba.

    SvaraEyða
    Svör
    1. Hæ pabbi, ég bið að heilsa Halla og Stebba :)

      Eyða
  3. En frábært að fá fréttir frá Svartfjallalandi. Klósett sögurnar eru ekki fallegar en ég vona að herbergið ykkar á hótelinu hafi verið notalegt. Til hamingju með fyrsta vinninginn og ég hlakka til að fá meira að heyra. Kveðja frá Rósa frænku

    SvaraEyða
  4. Hæ, Rósa. Vinningur númer tvö er kominn! Nú fer ég að tefla í þriðju umferð á eftir. Reyni að blogga líka, en netið er svo hægt..

    SvaraEyða